Já ég fór sem sagt í fílu út í bloggið mitt. Var búin að skrifa
ALLA ferðasöguna, nákvæmlega, en það bara hvarf... Þið skiljið því
ef til vill fjarveru mína síðustu vikur...
En svona gróflega þá fórum við til Köben, heimsóttum Legoland og
Löveparken dýragarðinn í Givskud, fórum í Tívolíið í Köben og
versluðum og versluðum... Fengum rigningu tvo daga en það var allt
í góðu, hinir dagarnir voru sólríkir og góðir.
Rifbeinin mín fá að finna fyrir því þessa dagana... Svefninn
svona rokkandi en ég er fílhress. Vinnan fín, finnst ég voða mikið
vera í fríi því ég er bara í 80% vinnu en það er ágætt.
Fór til nágranna míns og bekkjarfélaga að kíkja á frumburðinn,
snúllan er svo sæt og fín, er nú farin að hlakka heldur betur
til...
Aldrei að vita að ég fari bráðum að setja upp barnasíðu eins og
tíðkast víst, svo fólk geti fylgst með í myndum...
Þangað til næst - þolinmæðin þrautir vinnur allar - svona ef það
verður langt í næsta...